Um CBöD
CBöD var stofnað árið 2023 sem samstarf íslenskra bónda og verslana. Markmiðið frá upphafi hefur verið að byggja upp sterkt íslenskt vörumerki með áherslu á vandaða framleiðslu, stöðug gæði og traust samstarf.
Öll framleiðsla CBöD fer fram á Íslandi og við leggjum mikla áherslu á að hafa góða yfirsýn yfir allt ferlið, frá hráefni og ræktun yfir í framleiðslu og fullunna vöru. Þannig getum við tryggt samræmi, gæði og áreiðanleika í vörum sem eru ætlaðar bæði verslunum og neytendum.
Við vinnum með vandlega valin hráefni, jurtir og náttúruleg innihaldsefni og höfum skýrar kröfur til þess sem fer í hverja vöru. Fyrir okkur snýst gæði ekki aðeins um lokaafurðina heldur um hvert skref í ferlinu.
CBöD leggur áherslu á langtímasambönd við samstarfsaðila og að bjóða vörur sem verslanir geta treyst á hvað varðar gæði, afhendingu og framsetningu. Við viljum byggja vörumerkið áfram með íslenskan uppruna, fagleg vinnubrögð og stöðuga þróun að leiðarljósi.
CBÖD. Frá fræi til forystu.